Hvaða rugl

Sjaldan hefur maður heyrt aðra eins vitleysu. Á nú að fara að skella skuldinni á blásaklaus kameldýrin? Stjórnvöld þarna í landi, og reyndar í öllum vestrænum heimi, ættu að hætta að eyða púðri í karp, og ég tala nú ekki um svona vitleysu, og hagræða lögum og reglugerðum þannig að rafmagnsfarartæki verði fýsilegasti kosturinn til ferða. Ef einhverntíman umræður um hlýnun jarðar hafa farið í rugl þá er það á stundum sem þessum. Að láta detta sér í hug að einhver önnur dýrategund en maðurinn eigi að taka til heima hjá sér er alger fásinna.

 

Stebbi


mbl.is Ólga út af vindgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búhú

Afhverju er fyrir norðan ekki fyrir sunnan?
mbl.is Gott skíðafæri fyrir norðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband